Í 150 ár hafa norrænir lögfræðingar unnið saman að því að stuðla að öflugustu réttarsamfélögum heims.
Norðurlöndin fimm eru efst á öllum listum yfir öflug réttarríki, frjáls lýðræðisríki og samfélög án spillingar. Norðurlöndin fimm einkennast af sameiginlegum gildum og mörgum sameiginlegum réttarhefðum. Réttarhefðir Norðurlandanna fimm mótast meðal annars af norrænu lögfræðingaþingunum, en norrænir lögfræðingar tóku höndum saman fyrir 150 árum um einstakt samstarf til að tryggja réttarþróun sem mætir áskorunum samtímans. Norrænu lögfræðingaþingin safna að jafnaði saman um 1.000 lögfræðingum frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð á þriggja ára fresti til umræðna um lögfræðileg málefni líðandi stundar.
44. norræna lögfræðingaþingið verður haldið í Stokkhólmi 25. – 27. ágúst 2027.
Hægt er að hafa samband við sænsku stjórnina hér: kontakt@nordisktjuristmote.org