NORRÆNU
LÖGFRÆÐINGAÞINGIN

Velkomin á Norrænu lögfræðingaþingin.

Frumkvæðið að stofnun lögfræðingaþinganna árið 1872 byggðist á hugmyndinni um fagleg tengsl og umræður milli norrænna dómara, réttarfræðinga, stjórnsýslulögfræðinga og lögmanna. Viðfangsefnin ná enn yfir allt svið lögfræðinnar. Umræðan og samfélagið með kollegum frá Finnlandi, Íslandi, Svíþjóð, Noregi og Danmörku leggja grunn að þekkingu og ígrundun um norræna – og smám saman einnig evrópska – réttarhefð og aukna réttareiningu.

Þingin veita gott tækifæri til að mynda tengslanet þvert á landamæri.

43. norræna lögfræðingaþingið var haldið í Kaupmannahöfn 21.–23. ágúst 2024.

Næsta lögfræðingaþing verður haldið 25.–27. ágúst 2027 í Stokkhólmi.